Loksins hefur verið tilkynnt hvaða myndir verða sýndar á Stuttmyndadögum í Kringlubíói 4. júní og er Hjónabandsmiðillinn ekki ein þeirra. Kannski eilítið svekkjandi eftir að hafa komist þar áður en það voru aðeins valdar 19 myndir af 90 innsendum svo það kemur nú kannski ekki sérstaklega á óvart. Góðu fréttirnar eru þær að þá stendur ekkert í veginum fyrir þvi að skella myndinni inn á netið og verður hún komin hingað von bráðar.

Hér má sjá hvaða myndir komust inn: Heimasíða Stuttmyndadaga 2009

Jæja þá er myndin klár og komin á spólu og verður send suður í fyrramálið. Ekki seinna vænna þar sem sauðburður er að komast í fullan gang og að verða lítill tími til nokkurs annars. Þá er bara að bíða og sjá hvort myndin verður sýnd í Kringlubíói 28. maí.

mynd4

mynd5

mynd6